Vinir Mosfellsbæjar bjóða fram í sveitarstjórnarkosningum í vor

Það var skömmu fyrir sveitarstjórnarkosningar vorið 2018 sem hópur fólks með ýmsar
stjórnmálaskoðanir og ólíkan bakgrunn kom saman og ákvað að stofna hreyfingu með það eina
markmið að beita sér fyrir hagsmunum íbúa Mosfellsbæjar og gera þannig góðan bæ betri.
Þetta var fólk en ekki flokkur og þannig varð L-listi Vina Mosfellsbæjar til.


Þrátt fyrir mjög skamman fyrirvara fékk framboðið góðar viðtökur eða tæp 11% atkvæða og
einn bæjarfulltrúa af níu. Vinir Mosfellsbæjar hafa starfað í bæjarstjórn og í nefndum bæjarins
af ábyrgð og yfirvegun, tekið þátt í mörgum góðum ákvörðunum fyrir bæjarfélagið og bæjarbúa
alla, staðið vörð um góða stjórnsýsluhætti og starfað af heiðarleika og gegnsæi.


Vinir Mosfellsbæjar eru sannfærðir um að óháður bæjarlisti þar sem aðeins hagsmunir íbúa
bæjarins ráði för, eigi fullt erindi í Mosfesllsbæ og hafa því ákveðið að bjóða fram við komandi
bæjarstjórnarkosningar þann 14. maí nk. Innan skamms munu Vinir Mosfellsbæjar kynna
undirbúning og tilhögun framboðsins nánar. Vinir Mosfellsbæjar telja það mjög mikilvægt að
vanda til alls undirbúnings og að allir þeir sem þátt taka á framboðslistanum séu meðvitaðir um
að störf sem þeim er falið sem kosnir eru til starfa fyrir bæjarfélagið, eru samfélagsstörf í þágu
allra bæjarbúa.

Stefán Ómar Jónsson
Bæjarfulltrúi
Vina Mosfellsbæjar

Previous
Previous

Opnun á kosningaskrifstofu Vina Mosfellsbæjar

Next
Next

Helgafellshverfi – nýir áfangar og nýr vegur